March 24, 2012

Agent Fresco, Vicky og Caterpillarmen í kvöld á Gauknum!

Hér er á ferðinni urrandi flottur concert með þremur dúndur hljómsveitum. Klárlega rokkstund sem þú mátt ekki missa úr greipum og því skaltu taka kvöldið frá og setja þig í rokk stellingar því þetta verður geðveikt.

Agent Fresco gaf út breiðskífuna A Long Time Listening í lok árs 2010 en um þessar mundir er sveitin að undirbúa tónleikaferð um Evrópu sem verður í sumar til að fylgja á eftir útgáfu plötunnar, en hún mun koma út í Evrópu í Maí á þessu ári. Á sama tíma er sveitin á fullu að semja efni fyrir nýja plötu.

Vicky gaf út aðra breiðskífu sína í október 2011. Platan hefur hvarvetna hlotið góða dóma, endaði á lista Rolling stones yfir bestu jaðarplötur síðasta árs og morgunblaðið gaf henni nýverið 4 stjörnur í gagnrýni sinni svo eitthvað sé nefnt. Lagið þeirra Feel good naut mikilla vinsælda síðasta sumar og eyddi löngum stundum á vinsældalistum. Hljómsveitin hefur einnig verið rómuð sem gott tónleikaband sem engin ætti að láta sig missa af.

Caterpillarmen: Caterpillarmen eru ferskir þessa dagana enda nýkomnir af vel heppnuðum Evróputúr með hljómsveitinni tUnE-yArDs. Þeir spila frjálslegt og flæðandi Proggað Rokk með allskonar ívafi, hafa gefið út þrjár plötur og eru á leiðinni í upptökur á þeirri fjórðu um páskana. Á tónleikunum munu þeir spila vel valda blöndu af öllu þessu efni.

Húsið opnar: 22:00
Tóleikar hefjast: 23:00
Aðgangseyrir: 1000kr
20 ára aldurstakmark

Posted by in Blogg and tagged as , ,