Góðir hálsar, nær og fjær
Takið föstudagskvöldið 23. mars frá því þá mun allt um koll keyra á Faktorý!!
Efnt hefur verið til styrktartónleika til styrktar Krafti, en Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess.
Frábært fólk hefur lagt málefninu lið og er því line-up’ið alls ekki af verri endanum!
———————————————-
Fram koma:
VIKTOR BIRGISS
FOR A MINOR REFLECTION
ÚLFUR ÚLFUR
SYKUR
———————————————-
Efri hæðin opnar kl 22
Tónleikarnir hefjast kl 23
Miðaverð er 1500 kr.
Miðar seldir í hurð
———————————————-
Við hvetjum alla til að koma og hlusta á góða tónlist og leggja um leið málefninu lið.

0 Comments / Leave a comment or question